Tilfelli inflúensu ekki fleiri frá áramótum

Meirihluti greininga nú er af inflúensustofni B eins og verið …
Meirihluti greininga nú er af inflúensustofni B eins og verið hefur undanfarnar vikur. AFP

Vikulegur fjöldi greininga á staðfestri inflúensu hefur ekki verið meiri frá áramótum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá embætti landlæknis.

Meirihluti greininga nú er af inflúensustofni B eins og verið hefur undanfarnar vikur.

Í þessari seinni inflúensubylgju vetrarins hafa hlutfallslega fleiri greinst í aldurshópnum 5-14 ára samanborið við inflúensutoppinn fyrr í vetur. Þá greinast færri eldri einstaklingar núna með staðfesta inflúensu en fyrir og um áramótin.

Innlögnum á Landspítala vegna inflúensu fjölgaði í síðustu viku samanborið við undanfarnar sjö vikur. Eldri einstaklingar voru þar í meirihluta.

Í heild greindust 56 með staðfesta inflúensu í síðustu viku, 47 með inflúensustofn B, 5 með inflúensustofn A(H3) og 4 með stofn A(H1) pdm09.

Staðfest inflúensa var tæpur helmingur greindra öndunarfæraveira í síðustu viku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert