Gefur út gular viðvaranir fyrir þrjá landshluta

Vindaspá fyrir landið klukkan 14 á morgun, sunnudag.
Vindaspá fyrir landið klukkan 14 á morgun, sunnudag. Kort/Veðurstofa Íslands

Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir fyrir þrjá landshluta á morgun, vegna suðaustanáttar og snjókomu.

Tekur sú fyrsta gildi klukkan 6 árdegis og gildir fyrir Suðurland, til klukkan 17. Er varað við snjókomu og litlu skyggni á köflum, einkum undir Eyjafjöllum og í Fljótshlíð.

Er veðrið talið geta valdið erfiðleikum í samgöngum.

Snjókoma og skafrenningur

Önnur viðvörun tekur gildi klukkan 11 á Suðausturlandi og gildir til miðnættis.

Er þar sömuleiðis varað við snjókomu en einnig skafrenningi. Lítið skyggni gæti orðið á köflum og samgöngur gætu truflast.

Varað er við hinu sama á Austfjörðum, frá klukkan 21 og fram til klukkan 6 að morgni mánudags.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert