Tók upp hafnaboltakylfu til að verja sig

mbl.is/Kristinn Magnússon

Rétt eftir klukkan hálf ellefu í gærkvöldi barst lögreglunni tilkynning um mann með hafnaboltakylfu á bensínstöð í austurborginni.

Í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að er lögregla kom á staðinn kom í ljós að einhverjar deilur höfðu átt sér stað milli þriggja aðila sem enduðu með því að einn þeirra tók upp hafnaboltakylfu til að verja sig.

Samkvæmt upplýsingum lögreglunni var kylfunni ekki beitt og málið var leyst á vettvangi.

Reyndi að stinga af 

Þá gaf lögregla ökumanni stöðvunarmerki í miðbænum og reyndi ökumaður að stinga af.

Eftir skamma eftirför hlupu nokkrir aðilar úr bifreiðinni en þeir náðust allir og voru handteknir í þágu rannsóknar málsins.

Kveikjuláslyklar bifreiðarinnar fundust á einum sem hljóp frá bifreiðinni og er hann grunaður um akstur hennar. Þá fundust einnig fíkniefni og hnífur á öðrum.

Allir aðilarnir voru vistaðir í fangaklefa þar til hægt verður að ræða við þá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert