Af neyðarstigi niður á hættustig

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi hefur ákveðið að …
Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi hefur ákveðið að fara af neyðarstigi almannavarna niður á hættustig. Ljósmynd/Landsbjörg

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi hefur ákveðið að færa viðbúnaðarstig almannavarna af neyðarstigi niður á hættustig. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum. 

Neyðarstigi var lýst yfir í morgun þegar snjóflóð féll í Neskaupstað. Núna er staðan sú að búið er að rýma á annað hundrað heimila í Neskaupstað, Seyðisfirði og á Eskifirði og um 500 manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín.

Rýming verði til morguns

Nú, þegar tökum hefur verið náð á ástandinu og enginn er talinn í bráðri hættu, hefur eins og áður segir, verið ákveðið að fara af neyðarstigi á hættustig, sem er í samræmi við verklagsreglur þar um.

Vegna snjóflóðahættu er gert ráð fyrir að áframhaldandi rýming verði til morguns á Seyðisfirði, í Neskaupstað og á Eskifirði. Staðan verður þá tekin að nýju og ný ákvörðun kynnt. Verði breytingar á þessum á tilteknum svæðum, verður það strax kynnt hlutaðeigandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert