Vegna mikillar snjókomu á Austurlandi í nótt eru íbúar hvattir til að halda sig heima við.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi.
Snjóflóð féll í Norðfirði í nótt og er verið að skoða aðstæður á öðrum stöðum og þéttbýliskjörnum einnig.
Öllu skólahaldi hefur verið aflýst í Fjarðabyggð sem og almenningssamgöngum.