Skólahald fellur niður í Fjarðabyggð

Skólahald fellur niður á ýmsum stöðum í Fjarðarbyggð.
Skólahald fellur niður á ýmsum stöðum í Fjarðarbyggð. Ljósmynd/Landsbjörg

Skólahald fellur niður í leik- og grunnskólum í Neskaupstað, á Eskifirði og Fáskrúðsfirði á morgun, börnum og foreldrum til mismikillar hamingju. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sveitarfélaginu.

Slæm færð er á öllum þessum stöðum vegna snjóflóða sem féllu í dag. Þungfært er á götum sem og göngustígum og enn er rýming í gildi í Neskaupsstað og á Eskifirði, sem mun gilda fram eftir eftir morgni.

Staðan verður metin aftur í fyrramálið og gefin verður út tilkynning upp úr kl. 11:00. Því er biðlað til fólks um að fylgjast vel með miðlum sveitarfélagsins vegna þessa, auk tilkynninga um aðra þætti í þjónustu sveitarfélagsins.

Skólahald verður enn með hefðbundnum hætti á Reyðarfirði, Breiðdalsvík og Stöðvarfirði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert