Merki um fleiri snjóflóð

Í Neskaupstað hafa ummerki sést um fleiri snjóflóð eftir að …
Í Neskaupstað hafa ummerki sést um fleiri snjóflóð eftir að skyggni batnaði í morgun. Ljósmynd/Landsbjörg

Í Neskaupstað hafa sést merki um fleiri snjóflóð eftir að skyggni batnaði í morgun.

Í tilkynningu á vef Veðurstofu Íslands segir að í dag er gert ráð fyrir skaplegu veðri á Austfjörðum en þó verður einhver éljahraglandi viðloðandi í austlægri vindátt. Snjóathugunarmenn Veðurstofunnar byrjuðu að skoða aðstæður snemma í morgun.

Stórt flóð féll úr Bakkagili en það náði ekki húsum. Snjóflóð féll einnig úr Skágili og lenti utan í skógrækt og síðan á varnarkeilum og alla leið niður á varnargarðinn undir Drangagili. Úr Ytra-Tröllagili fór snjóflóð sem nær niður að varnarkeilum. Áður var vitað um snjóflóð úr Nesgili sem féll á fjölbýlishús við Víðimýri í gærmorgun og snjóflóð úr Miðstrandargili (Miðstrandarskarði) sem féll út í sjó meðfram leiðigarði innan við þéttbýlið. Einnig fór snjóflóð yfir veg í Fannardal.

Frá snjóflóðunum í Neskaupstað í gær.
Frá snjóflóðunum í Neskaupstað í gær. Kort/mbl.is

Mörg frekar þunn

Á Eskifirði hafa ekki sést snjóflóð en snjóflóð úr Hólmatindi náði út á veg utan við álverið í Reyðarfirði.

Á Seyðisfirði féll snjóflóð úr Bjólfsöxl á mannlaust hús utan við þéttbýlið, og talið er að fleiri flóð hafi fallið í Bjólfi en að þau hafi verið lítil.

Mörg þessara flóða eru frekar þunn og virðast hafa farið hratt og getur verið erfitt að sjá ummerki um þau þegar birtuskilyrði eru slæm.

Hætta aukist á ný

Mikill snjór er til fjalla víða á svæðinu og veikleiki virðist vera útbreiddur.

Rýmingar eru í gildi í Neskaupstað, á Eskifirði og Seyðisfirði.

Veður ætti að haldast þokkalegt í dag og dregið hefur verulega úr snjóflóðahættu frá því í gær, en ekki er hægt að útiloka stöku snjóflóð á meðan ennþá éljar og skefur aðeins til fjalla.

Á morgun bætir í úrkomu á ný með vaxandi vindi í austlægri átt. Spáð er mikilli úrkomu fram á laugardag. Heldur hlýnar og gæti orðið slydda í byggð en snjókoma til fjalla. Viðbúið er að snjóflóðahætta aukist á ný á Austfjörðum í þessu veðri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert