Fundu bílaparta inni í húsunum

Smiðir njóta nú liðsinnis björgunarsveitarmanna við að loka fyrir brotna …
Smiðir njóta nú liðsinnis björgunarsveitarmanna við að loka fyrir brotna glugga. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Við fundum parta úr bílunum inni í húsi,“ segir einn björgunarsveitarmaðurinn sem staddur er við Starmýri 17-19 á Neskaupstað þar sem björgunarsveitarfólk og smiðir eru staddir til að negla fyrir glugga til að bjarga verðmætum.

Um er að ræða rýmt svæði og þangað fer enginn inn nema vera með snjóflóðaýla á sér. 

Bíllinn sem bjargaði málunum. Fyrir innan bílinn er eini óbrotni …
Bíllinn sem bjargaði málunum. Fyrir innan bílinn er eini óbrotni glugginn á neðri hæð hússins. Þar fyrir innan svaf barn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Gefur þetta til kynna þann ógnarkraft sem fylgt hefur flóðinu. Bílar liggja hvarvetna eins og hráviði á meðan aðrir eru á kafi undir snjó. Þá má sjá að tré í hlíðinni eru brotin í beinni línu sem skilgreinir farveg flóðsins.  

Miklar skemmdir eru á húsinu.
Miklar skemmdir eru á húsinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Við áttum að bjarga einhverjum munum. Myndum og eitthvað svoleiðis,“ segir annar áður en þeir eru roknir inn í hús sem uppfull eru af snjó eftir snjóflóðin á mánudagsmorgun.

Þegar horft er til fjalla má sjá farveg flóðsins á …
Þegar horft er til fjalla má sjá farveg flóðsins á brognum trjám. mbl.is/Eggert Jóhannesson


 

Spónarplötur eru nýttar við að loka fyrir.
Spónarplötur eru nýttar við að loka fyrir. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Stefnt er að því að bjarga verðmætum.
Stefnt er að því að bjarga verðmætum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Samkvæmt upplýsingum frá aðgerðastjórn verða þetta einu aðgerðirnar sem gripið verður til í dag. Segja má að nú sé eins konar biðstaða hjá viðbragðsaðilum. Lognið á undan storminum en veðurspá er slæm og mikilli úrkomu spáð næstu daga. 

 

Það eina sem stóð upp úr er þetta Mercedes Bens …
Það eina sem stóð upp úr er þetta Mercedes Bens merki á einum bílanna á svæðinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert