Stórar breytingar við Bústaðaveg og Reykjanesbraut

Breytingar á gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðarvegar verða kynntar í dag.
Breytingar á gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðarvegar verða kynntar í dag. Vegagerðin

Stórar breytingar munu verða á gatnamótum Bústaðavegar og Reykjanesbrautar. Til stendur annað hvort að reisa brú við gatnamótin eða að afnema vinstri beygju þar alfarið. Við breytingar verður mikið tillit verður tekið til uppbyggingar fyrirhugaðrar borgarlínu.

Kynningarfundur um breytingar verður haldinn klukkan 17:00 í dag í húsakynnum Reykjavíkurborgar í Borgartúni 14. Vegagerðin, Reykjavíkurborg og Betri samgöngur standa að fundinum.

„Þetta hefur áður verið til umræðu fyrir mörgum árum og nú er þessi vinna að fara aftur í gang,“ segir Kristján Árni Kristjánsson, verkefnastjóri Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu í samtali við mbl.is.

Hann segir að niðurstaðan komi úr greiningu sem unnin var fyrir nokkrum árum til þess að finna lausnir fyrir umferð á Reykjanesbrautinni.

Umferðarljósin verða afnumin

Tvennar breytingar koma til greina við gatnamótin, annars vegar að reisa brú við með vinstri beygju en hins vegar að fjarlæga alfarið vinstribeygju við gatnamótin. Í báðum tilfellum yrðu umferðarljósin afnumin.

Frá gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar. Mynd úr safni.
Frá gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar. Mynd úr safni. mbl.is/Brynjar Gauti

„Fyrir allar lausnir verða ljósin afnumin, hvort sem það yrði bara hægri inn og út eða hvort við verðum með vinstri beygju á brú,“ segir Kristján

Mikið tillit tekið til Borgarlínunnar

„Endanleg lausn fyrir gatnamótin við Bústaðaveg verður ekki valin fyrr en við erum búin að sjá hvaða leið fyrir Borgarlínu hentar best,“ segir Kristján og bætir við að breytingarnar séu gerðar með hliðsjón af uppbyggingu Borgarlínunnar. Þá þurfi að fá á hreint hvoru megin við götuna Borgarlínan liggi.

Ljósmynd/Betri samgöngur

Hann segir að þá þurfi að vita „hvort borgarlína verði í austurkanti Reykjanesbrautar og keyri meðfram Elliðaárdalnum“ eða hvort hún muni keyra „inni í miðju Reykjanesbrautar“.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert