Aðildarfélög BSRB undirrita kjarasamninga

Sonja Ýr Þorbergsdóttir er formaður BSRB.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir er formaður BSRB.

Aðildarfélög BSRB hafa náð samkomulagi við ríki og Reykjavíkurborg um launahækkanir og kjarabætur fyrir starfsfólk í almannaþjónustu. Um skammtímasamninga er að ræða sem gilda í tólf mánuði frá 1. apríl 2023. Þetta kemur fram í tilkynningu frá BSRB.

Forsvarsfólk fjórtán aðildarfélaga BSRB undirrita í kjölfarið kjarasamningana í húsi Ríkissáttasemjara en undir þau falla um 14 þúsund félagsmenn. Stéttafélagið Sameyki hefur þegar undirritað sína samninga við ríki og borg.

Samningarnir fara nú í kynningu hjá aðildarfélögunum og í kjölfarið í atkvæðagreiðslu félagsmanna sem lýkur 14. apríl.

Fagna því að samningur taki við af samningi

Haft er eftir Sonju Ýr Þorbergsdóttur, formanni BSRB, að í viðræðunum hafi verið haft að leiðarljósi að verja kaupmátt starfsfólks í almannaþjónustu, þar sem verðbólgan sé farin að bíta verulega og langt síðan fólk á almennum vinnumarkaði fékk sínar kjarabætur.

„Við fögnum því að kjarasamningur taki við af kjarasamningi svo launafólk fái ávinninginn af samningunum strax í vasann 1. maí. Rétt eins og á almenna markaðinum er um skammtímasamninga að ræða og svo hefst fljótlega undirbúningur fyrir gerð langtímakjarasamninga hjá aðildarfélögum BSRB. Kröfur okkar munu ekki eingöngu beinast að launagreiðendum heldur einnig stjórnvöldum,“ segir Sonja.

Stéttafélögin sem hafa undirritað samninga eru:

Félag flugmálastarfsmanna ríkisins

Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi

FOSS - stéttafélag í almannaþjónustu

Félag starfsmanna stjórnarráðsins

Kjölur, stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu

Landssamband lögreglumanna

Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna

Sameyki - stéttarfélag í almannaþjónustu

Sjúkraliðafélag Íslands

Starfsmannafélag Garðabæjar

Starfsmannafélag Kópavogs

Starfsmannafélag Húsavíkur

Starfsmannafélag Suðurnesja

Starfsmannafélag Vestmanneyja

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert