Einn fluttur á sjúkrahús eftir árekstur í Hvalfjarðarsveit

Einn var fluttur á slysadeild. Mynd úr safni.
Einn var fluttur á slysadeild. Mynd úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Árekstur varð við Hagamel í Hvalfjarðarsveit um miðjan dag í dag. Einn var fastur í bíl eftir áreksturinn en gekk vel að ná honum út. Aðeins einn var fluttur á sjúkrahús á Akranesi.

Þetta staðfestir Björn Bergmann Þórhallsson, varaslökkviliðsstjóri hjá slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Hann segir jafnframt engin alvarleg slys hafa orðið á fólki.

Slökkviliðinu barst útkallið frá neyðarlínunni klukkan 15:44. Tíu manns voru sendir á staðinn í tveimur klippubílum frá slökkviliðinu en einn sjúkrabíll var sendur á staðinn að auki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert