Íbúar taka rýmingu með stóískri ró

Óskar Þór Guðmundsson.
Óskar Þór Guðmundsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á Fáskrúðsfirði er að ljúka við rýmingu á reit sex í bænum vegna snjóflóðahættu.

Þetta segir Óskar Þór Guðmundsson vettvangsstjóri og lögreglumaður á Fáskrúðsfirði.

Kort sem sýnir rýmingu á reit 6 á Fáskrúðsfirði.
Kort sem sýnir rýmingu á reit 6 á Fáskrúðsfirði. Ljósmynd/Aðsend

„Það er gert í varúðarskyni eftir að við skoðuðum fjallið með flygildi. Þá tók ofanflóðavakt Veðurstofunnar ákvörðun um að rýma þennan reit,“ segir hann í samtali við blaðamann mbl.is á staðnum.

Lögreglustöðin á Fáskrúðsfirði.
Lögreglustöðin á Fáskrúðsfirði. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Spurður segir Óskar Þór að bæjarbúar hafi tekið þessum fyrirmælum með stóískri ró enda séu þeir vanir ofanflóðahættu á svæðinu. Sjö björgunarsveitarmenn frá Geisla á Fáskrúðsfirði hafa aðstoðað fólk við rýminguna.

Þar að auki hefur fjöldahjálparmiðstöð verið komið upp í grunnskóla bæjarins.

Snjóflóðahætta er á Fáskrúðsfirði.
Snjóflóðahætta er á Fáskrúðsfirði. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert