Óvissustigi aflétt í Neskaupstað

Óvissustigi hefur verið aflétt í Neskaupstað eftir snjóflóðin sem þar …
Óvissustigi hefur verið aflétt í Neskaupstað eftir snjóflóðin sem þar féllu í síðustu viku. Ljósmynd/Landsbjörg

Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi ákveðið að aflýsa óvissustigi almannavarna vegna snjóflóða í Neskaupstað. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

Kemur þar enn fremur fram að Veðurstofa Íslands hefur einnig aflýst óvissustigi sínu vegna hættu á snjóflóðum og krapaflóðum á Austfjörðum.  

Þjónustumiðstöð opin áfram

Við taki umfangsmikil verkefni við hreinsun og endurreisn samfélagsins eftir því sem greint er frá í tilkynningunni. Segir þar einnig að þjónustumiðstöð almannavarna sé starfrækt í Neskaupstað og verði opin eins lengi og hennar verði þörf.  

„Verkefni þjónustumiðstöðvar felast í stuðningi við íbúa og aðra sem á einhvern hátt hafa orðið fyrir áhrifum ofanflóða og ofanflóðahættu á Austfjörðum. Stuðningurinn felur meðal annars í sér upplýsingagjöf og fræðslu af ýmsu tagi og Rauði krossinn mun halda áfram að bjóða upp á sálfélagslegan stuðning í þjónustumiðstöðinni,“ segir að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert