Páll á Húsafelli biður Sæmund afsökunar

Páll Guðmundsson myndhöggvari í Húsafelli.
Páll Guðmundsson myndhöggvari í Húsafelli. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Páll Guðmundsson myndhöggvari í Húsafelli hefur beðið Sæmund Ásgeirsson afsökunar vegna ummæla Páls á Facebook um Húsafellsmálið. 

Sumarið 2021 stóðu nágrannarnir Páll og Sæmundur í deilum um leg­steina­hús Páls.

Páll hafði reist húsið á grund­velli deili­skipu­lags sem var búið að samþykkja af bygg­inga­full­trúa Borg­ar­byggðar en aug­lýst und­ir röngu nafni og röngu land­núm­eri. Sæmund­ur var ósátt­ur við þetta deili­skipu­lag, sem gerði ráð fyr­ir nokkr­um bygg­ing­um við sam­eig­in­legt bíla­stæði inni á hans landi. Sæmund­ur kærði bygg­ing­ar­leyfið en Páll byggði húsið á grund­velli leyf­is­ins, þrátt fyr­ir fyr­ir­vara um að það yrði á hans ábyrgð í ljósi þess að leyfið væri í kæru­ferli, að því er kom fram í niður­stöðu Héraðsdóms Vest­ur­lands. Páli var í kjölfarið gert að fjar­lægja húsið á eig­in kostnað. 

Málalok urðu þó þau að undirritaður var samningur í ágúst 2021 þess efnis að legsteinahúsið fengi að standa og Sæmundur fengi að byggja fleiri hús á sínu landi. Þá greiddi Borgarbyggð báðum aðilum bætur vegna þess tjóns sem þeir hlutu af málinu. 

Páll skrifaði Facebook-færslu degi áður en samningurinn var undirritaður þar sem hann sagði að Sæmundur hefði tekið tiltekna legsteina án leyfis.

Nú hef ég fengið upplýsingar sem sýna það að tilvitnuð skrif mín voru byggð á röngum forsendum,“ segir í færslu Páls sem var birt á mánudag. 

Því biður hann Sæmund afsökunar og þá hefur hann fjarlægt færsluna af samfélagsmiðlinum. 

Það er ekki og hefur aldrei verið vilji minn að standa í deilum við Sæmund Ásgeirsson og því leiðréttist þetta hér með.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert