Óánægjan raski ekki flugi um páskana

Bogi Nílsson, forstjóri Icelandair.
Bogi Nílsson, forstjóri Icelandair. mbl.is/Árni Sæberg

„Við vitum að það er óánægja í gangi og við erum að vinna í þessum málum,“ segir Bogi Nils Boga­son, for­stjóri Icelanda­ir, seg­ir í sam­tali við mbl.is um þá óánægju sem ríkir á meðal flugvirkja Icelandair vegna gildandi kjarasamnings. 

Í síðustu viku greindi mbl.is frá því að óánægja væri meðal flug­virkja Icelanda­ir vegna ólíkra launa­hæk­anna kjara­samn­inga f-stétt­anna þriggja, það er að segja flug­manna, flug­freyja og flug­virkja. All­ar stétt­irn­ar skrifuðu und­ir kjara­samn­inga er heims­far­ald­ur­inn geisaði og gilda þeir til lok árs 2025.

„Við viljum náttúrulega bjóða upp á fyrirmyndar og eftirsóttan vinnustað,“ segir Bogi og bætir við að verið sé að vinna í því að koma til móts við flugvirkja. „Og vonandi gengur það eftir.“

Spurður hvort að óánægjan muni raska flugi, og þá sérstaklega yfir páskaannirnar, segir Bogi svo ekki vera. 

„Við erum ekki að sjá það eins og staðan er núna.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert