Fékk 13 rétta án þess að þrítryggja

Vinningshafarnir fengu þrjár milljónir hvor.
Vinningshafarnir fengu þrjár milljónir hvor. mbl.is/Golli

Tveir tipparar voru með alla þrettán leikina rétta á enska getraunaseðlinum á laugardaginn. 

Fá þeir hvor um sig rúmar þrjár milljónir króna í sinn hlut samkvæmt tilkynningu frá Íslenskum getraunum.

Annar þeirra tippaði á seðil með átta tvítryggðum leikjum og hafði fimm leiki með einu merki. Fékk hann því þrettán rétta án þess að þrítryggja leik. Keypti hann miðann í Lengju appinu samkvæmt tilkynningunni.

Hinn vann á kerfisseðil sem keyptur var í félagakerfi Íslenskra getrauna hjá Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík en ekki kemur nánar fram hvernig seðillinn var settur saman.  

Vinningshafarnir styðja annars vegar Víking og hins vegar Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert