Fordæma ákvarðanir bæjarstjórnar Kópavogs

Stjórn BÍL sendi frá sér ályktun í dag þar sem …
Stjórn BÍL sendi frá sér ályktun í dag þar sem hún fordæmir ákvarðanir bæjarstjórnar Kópavogs um framtíð menningarstofnanna bæjarins. mbl.is/Hjörtur

Stjórn Bandalags íslenskra listamanna (BÍL) fordæmir ákvarðanir bæjarstjórnar Kópavogs um framtíð menningarstofnanna bæjarins. Þetta kom fram í ályktun stjórnarinnar á fundi í dag.

Í ályktuninni segir jafnframt að merkilegt sé að lesa skýrsluna sem bæjarstjóri Kópavogs lét gera fyrir sig og byggir ákvarðanir sínar um breytingar á skipulagi menningarrekstrar í bænum á.

Þá sé farin frumstæð og nánast barnaleg leið í mati á rekstri menningarstofnana bæjarins og engu skeytt um hið raunverulega gildi og tilgang starfsins fyrir samfélagið.

Menningarstofnanir mikilvægar

Þá telur stjórn BÍL að rekstur menningarstofnana og ávinningur samfélagsins af þeim sé gríðarlega fjölbreyttur og flókinn og þykir þeim undarlegt að ekki skuli hafa verið leitað til aðila sem þekkingu hafa á menningarrekstri og hagrænum áhrifum af menningarstarfi.

Þá gagnrýnir stjórnin að í skýrslunni sé ekki vikið í neinu að þeim almannagæðum sem liggja til grundvallar þátttöku sveitarfélags og stjórnvalda í menningu og hvorki leggi skýrslan sjálfstætt mat á það né sé vitnað í þann fjölda rannsókna sem sýna fram á hlutverk og virði menningar og listsköpunar fyrir samfélög. 

Að lokum harmar Bandalag íslenskra listamanna að annað stærsta sveitarfélag landsins, sem að þeirra sögn hafi hingað til sýnt metnað við uppbyggingu menningarstofnana sinna, skuli umgangast starf þeirra af jafn mikilli vanþekkingu og lítilsvirðingu og raun ber vitni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert