Listaverk við nýja spítalann

Tölvuteiknuð mynd með gamla spítalann í baksýn. Listaverk munu prýða …
Tölvuteiknuð mynd með gamla spítalann í baksýn. Listaverk munu prýða nýja spítalann að innan sem utan.

Efnt verður til listaverkasamkeppni á næstunni í tengslum við byggingu nýs Landspítala við Hringbraut og verða haldnar samkeppnir til að gefa listafólki kost á að senda inn hugmyndir. Gildir það til að mynda um útfærslu á Sóleyjartorgi, fyrir framan gamla spítalann en einnig byggingarhluta húsanna.

„Mjög fljótlega munum við hjá Nýja Landspítalanum auglýsa listaverkasamkeppni, í samstarfi við Samband íslenskra myndlistarmanna og hagaðila, vegna lögboðins listskreytingaverkefnis. Ákveðinn hluti af byggingakostnaði skal fara í listskreytingar og við auglýsum fyrstu samkeppnina, af nokkrum, um miðjan maí. Þá gefst myndlistarmönnum tækifæri til að koma með hugmyndir að listaverkum sem meðal annars tengjast byggingahlutum eða því umhverfi sem spítalinn er í,“ segir Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri Nýja Landspítalans, og kveðst ekki muna eftir jafn fjölbreyttum listskreytingasamkeppnum í tengslum við nýbyggingar á Íslandi á undanförnum áratugum.

Nán­ari um­fjöll­un er að finna í Morg­un­blaðinu í gær. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert