Dansa af gleði eftir góðar fréttir

Guðmundur Felix Grétarsson og Sylwia Gretarsson dönsuðu í dag.
Guðmundur Felix Grétarsson og Sylwia Gretarsson dönsuðu í dag. Skjáskot

Guðmundur Felix Grétarsson segir að svo geti farið að hann verði útskrifaður af sjúkrahúsi um miðja næstu viku.

Guðmundur og eiginkona hans, Sylwia Gretarsson, fagna fréttunum með dansi inni á sjúkrahúsinu þar sem Guðmundur hefur dvalið síðan í lok apríl.

Hjónin deildu myndbandi af sér við dansinn á Instagram og á Facebook þar sem stendur: „Hamingjan er val“.

„Þetta hefur verið ógnvekjandi vika en nú, fjórum aðgerðum síðan, lítur ástandið betur út. Ég gæti losnað héðan um miðja næstu viku,“ skrifar Guðmundur Felix.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert