Ekki sést til iðnaðarmanna í marga mánuði

Mynd úr heimilisfræðistofu.
Mynd úr heimilisfræðistofu. Ljósmynd/Aðsend

Starfsfólk Laugarnesskóla krefst úrbóta á starfsaðstæðum sínum og nemenda Laugarnesskóla, í opnu bréfi til Dags B. Eggertssonar borgarstjóra. 

Í bréfinu kemur fram að í mörg ár hafi nemendur og starfsfólk skólans unnið í heilsuspillandi starfsumhverfi vegna myglu, rakaskemmda og leka. Ítrekað hafi þurft að skipta um stofur meðan plástrað er yfir myglu og rakaskemmdir og starfsfólk hrökklast úr starfi vegna veikinda. 

Ekki hefur verið hægt að kenna í hluta heimilisfræðistofu skólans vegna viðhaldsframkvæmda frá því í haust. Þessum framkvæmdum er enn ekki lokið, en ekki hefur sést til iðnaðarmanna í marga mánuði. Heill árgangur skólans hefur verið í skrifstofuhúsnæði Knattspyrnusambands Íslands á Laugardalsvelli frá því haustið 2022, en til stóð að koma færanlegum kennslustofum fyrir á lóð skólans, nú berast fréttir af því að þær verði ekki settar upp sökum kostnaðar. 

Starfsfólk segir Reykjavíkurborg vel kunnugt um stöðuna. Ítrekað hafi verið óskað eftir úrbótum en gluggar skólans hafa lekið frá árinu 1997. Á sama tíma er skólinn löngu sprunginn og nemendum fjölgar hratt. Spár Reykjavíkurborgar um nemendafjölda og áform um uppbyggingu í hverfinu, benda til þess að nemendum fari ekki fækkandi á svæðinu og því nauðsynlegt að grípa til aðgerða. 

Sjái sóma sinn í að útvega nemendum húsnæði við hæfi

Bréfið í heild sinni er svohljóðandi:

Opið bréf til Dags B. Eggertssonar borgarstjóra,

Við undirrituð krefjumst úrbóta á starfsaðstæðum okkar og nemenda Laugarnesskóla.

Í of mörg ár hafa nemendur og starfsfólk Laugarnesskóla unnið í heilsuspillandi starfsumhverfi vegna myglu, rakaskemmda og leka. Einnig höfum við ítrekað þurft að skipta um stofur meðan plástrað er yfir myglu og rakaskemmdir. Starfsfólk hefur hrökklast úr starfi vegna veikinda tengdum myglu og hörmum við það.

Frá því í haust hefur ekki verið hægt að kenna í hluta heimilisfræðistofunnar vegna viðhaldsframkvæmda. Þessum framkvæmdum er enn ekki lokið og hafa iðnaðarmenn ekki sést í marga mánuði. Á meðfylgjandi mynd má sjá hvernig heimilisfræðistofan lítur út. Sjón er sögu ríkari. Árið 1997 var skipt um glugga í skólanum en þeir hafa lekið alla tíð síðan. Á árunum 2004 - 2006 var húsið steinað en þrátt fyrir það finnst mikil mygla í útveggjum Laugarnesskóla sem rekja má til þess að gluggar voru ekki lagfærðir. Við erum því í sömu stöðu og við vorum í fyrir nokkuð mörgum árum og sífellt fleira starfsfólk finnur fyrir einkennum myglu.

Skólayfirvöld hafa ítrekað óskað eftir úrbótum við Reykjavíkurborg sem er vel kunnugt um stöðuna.

Laugarnesskóli er löngu sprunginn og nemendum hefur fjölgað hratt undanfarin ár. Spár Reykjavíkurborgar um nemendafjölda og áform um uppbyggingu í hverfinu benda einnig til þess. Skortur á kennslustofum og plássleysi í öðrum rýmum, s.s. sérgreinastofum, íþróttaaðstöðu, mötuneyti, eldhúsi og vinnuaðstöðu er því ekki tímabundið vandamál.

Það er öllum ljóst að gera þarf ráðstafanir til að koma allri kennslu fyrir á skólalóðinni fyrir haustið 2023. Þessar ráðstafanir eru ekki tímabundin lausn til eins árs heldur húsnæði sem skólinn mun nýta næstu árin meðan beðið er eftir viðbyggingu. Fyrirhugaðri viðbyggingu við skólann hefur ítrekað verið frestað og höfum við tvisvar gert þarfagreiningu á húsnæðinu. Því hefur verið haldið fram að erfitt sé að byggja við skólann vegna friðunar hússins og plássleysis á skólalóðinni. Við viljum benda á að hægt er að byggja t.d. þar sem frístundaheimilið Laugarsel og önnur skúraþyrping er staðsett í dag.

Haustið 2022 var heill árgangur fluttur í skrifstofuhúsnæði Knattspyrnusambands Íslands á Laugardalsvelli. Til stóð að kennsla færi þar fram meðan tveimur færanlegum kennslustofum yrði komið fyrir á lóðinni. Skólastarf átti upphaflega að hefjast í þessum færanlegu stofum í október 2022. Þeim framkvæmdum var hins vegar frestað, fyrst fram í desember 2022, þá fram á vor 2023 og loks til haustsins 2023. Nú höfum við fengið þær fréttir að þetta kennslurými verði ekki sett upp á lóðinni sökum kostnaðar. Við förum fram á að þessi ákvörðun verði endurskoðuð.

Það er löngu tímabært að borgaryfirvöld sjái sóma sinn í að útvega nemendum Laugarnesskóla húsnæði við hæfi. Með því að flytja heilu árgangana af skólalóðinni og þjappa bekkjum saman eru yfirvöld svo sannarlega ekki að velja það sem barninu er fyrir bestu. Við krefjumst þess að viðgerð á skólanum verði sett í algjöran forgang og að starfsemi skólans verði tryggt bráðabirgða húsnæði á skólalóðinni fyrir næsta haust svo að skólastarf verði fyrir sem minnstri röskun meðan á viðgerðum stendur.

Höfundar eru starfsmenn Laugarnesskóla.

Bréfið er sent fyrir hönd starfsfólks Laugarnesskóla.

Ágústa Jónsdóttir
Dóra Marteinsdóttir
Jakobína Kristín Arnljótsdóttir
Rúna Björg Garðarsdóttir
Svanhvít Sveinsdóttir
Vignir Ljósálfur Jónsson 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert