Netárásir gerðar á íslenskar vefsíður

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. Ljósmynd/Unsplash/Towfiqu barbhuiya

Netárásir voru gerðar á ýmsar íslenskar vefsíður fyrir rúmlega hálftíma síðan.

Guðmundur Arnar Sigmundsson, forstjóri netöryggissveitarinnar CERT-IS, segir í samtali við mbl.is að verið sé að vinna að því að fá staðfestingu á hvað sé í gangi. 

„Það eru árásir í gangi á mismunandi aðila á Íslandi,“ segir hann og bætir við að óvíst sé hvort að um sé að ræða svokallaðar álagsárásir (DDOS). Þá er mikilli umferð beint að vef í þeim tilgangi að lama kerfin og gera óvirk til skamms tíma, án þess þó að þrjótarnir komist yfir gögn eða skemmi kerfi.

„Við erum í greiningarvinnu... Staðan er sú að rekstararaðilar þessara hýsingaraðila eru á fullu núna að koma öllu á lappir aftur,“ segir Guðmundur og bætir við að meðal annars hefur vefur CERT-IS dottið niður. 

Þá gengur erfiðlega að komast inn á vef Stjórnarráðsins, Alþingis, Dómstólasýslunnar, Fjarskiptastofu og Umhverfisstofnunar. 

Náið sam­starf hef­ur verið und­an­farn­ar vik­ur á milli rík­is­lög­reglu­stjóra­embætt­is­ins og CERT-IS til að und­ir­búa og skipu­leggja viðbrögð við hættu á netárás­um í kring­um leiðtoga­fund Evr­ópuráðsins sem hefst í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert