Myndskeið: „Við erum hér!“

Á fjórða hundrað nemendur og kennarar Kvennaskólans í Reykjavík og Menntaskólans við Sund komu saman fyrir utan mennta­- og barnamálaráðuneytið í dag og mótmæltu fyr­ir­hugaðri sam­einingu fram­halds­skól­anna tveggja.

Nemendur tóku til máls á mótmælafundinum en þeim finnst að samráð hefði átt að hafa við þá við ákvörðunartöku ráðuneytisins.

mbl.is var á staðnum og tók nemendur tali en myndskeiðið má sjá í spilaranum að ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert