Eldur kviknaði í íbúð í Skipholti

Að sögn varðstjóra var um töluverðan eld að ræða miðað …
Að sögn varðstjóra var um töluverðan eld að ræða miðað við stærð íbúðar. Miklar skemmdir urðu á íbúðinni. Ljósmynd/Aðsend

Eldur kviknaði í fjölbýlishúsi í Skipholti í Reykjavík um klukkan fjögur í nótt. 

Einn var inni í íbúðinni er eldurinn kviknaði en var kominn út er slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kom á vettvang. Hann var fluttur á slysadeild vegna gruns um reykeitrun. 

Að sögn varðstjóra var um töluverðan eld að ræða miðað við stærð íbúðar. Miklar skemmdir urðu á íbúðinni. 

Slökkvistarf tók um eina og hálfa klukkustund og eru eldsupptök óljós. 

Slökkvistarf tók um eina og hálfa klukkustund.
Slökkvistarf tók um eina og hálfa klukkustund. Ljósmynd/Aðsend
Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert