Starfsfólk samþykkir áfengiskaup ferðalanga

Sjálfsafgreiðslukassar hafa verið settir upp í brottfaraversluninni í fríhöfninni. Þegar …
Sjálfsafgreiðslukassar hafa verið settir upp í brottfaraversluninni í fríhöfninni. Þegar nýtir stór hluti viðskiptavina sér kassana.

Breytingar hafa verið gerðar á afgreiðslu í fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli. Í stóru brottfaraversluninni sem gengið er í gegnum eftir öryggishliðið voru nýverið teknir í notkun sjálfsafgreiðslukassar sem flýta eiga fyrir afgreiðslu ferðalanga. Eins og flestir vita eru í þessari fríhafnarverslun seldar vörur á borð við snyrtivörur, áfengi og tóbak, minjagripir og ýmiss varningur sem kemur sér vel á ferðalögum.

Þorgerður Þráinsdóttir, framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar, segir að sjálfsafgreiðsla í brottfaraverslun hafi verið tekin í notkun í lok apríl. Eftir sem áður er einnig boðið upp á hefðbundna afgreiðslukassa. Hún segir jafnframt að þessi viðbót hafi gefist vel. „Já, mjög vel og nú þegar eru um 35-40% viðskipta í sjálfsafgreiðslu.“

Hægt er að nálgast umfjöllunina í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Kauptu vikupassa

Lestu meira með vikupassa!

Fáðu þér vikupassa fyrir 2.185 kr. og þú færð aðgang að öllu efni úr blaði dagsins í dag og næstu 6 daga.

Kaupa vikupassa

Aðrar áskriftarleiðir »