Banna dýrahald vegna „óviðunandi“ ástands

Matvælastofnun á Selfossi.
Matvælastofnun á Selfossi. mbl.is/Sigurður Bogi

Matvælastofnun (Mast) hefur farið fram á það við lögreglu að ábúendur á bæ á Vesturlandi verði með dómi sviptir heimild til að hafa dýr í sinni umsjá.

Í tilkynningu á vef Mast kemur fram að eftirlit stofnunarinnar hafi leitt í ljós „óviðunandi ástand á bænum með tilliti til dýravelferðar en ábúendur hafa nú þegar losað sig við öll dýr“.

Beiðni Mast byggist á á 44.gr. laga nr. 55/2013 um velferð dýra en þar segir að svipta megi umráðamenn dýra með dómi heimild til að hafa dýr í umsjá sinni ef þeir teljast ekki hafa getu til að annast dýr. Í 10.gr. laganna er gerð krafa um getu, hæfni og ábyrgð allra umráðamanna dýra.

Þá kemur fram að Mast hefur með heimild í 39.gr. dýravelferðarlaga lagt á ábúendur tímabundið bann við öllu dýrahaldi uns dómur hefur fallið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert