„Enginn vill bera ábyrgð“

Hömluleysið á húsnæðismarkaði er rót verðbólgunnar í dag að sögn …
Hömluleysið á húsnæðismarkaði er rót verðbólgunnar í dag að sögn Kristrúnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Það er 10% verðbólga, vextir nálgast 9% og enginn vill bera ábyrgð. Eitt stærsta vandamál okkar tíma er vantraust og vantrú í garð stjórnmálamanna. Þetta sagði Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar í ræðu sinni um stöðuna í efnahagsmálum á Alþingi í dag.  

Í ræðu sinni sagði Kristrún Íslendinga finna fyrir brestum víða. Það væri sama hversu oft ráðherrar þyldu upp tölfræði um kaupmátt ráðstöfunartekna og ýmsa mælikvarða á tekjujöfnuð, brestir hafa myndast víða í velferðarkerfinu og almenningu finnur fyrir brestum á húsnæðismarkaði. 

Meðalhúsnæði kostar í dag 14-faldar meðalráðstöfunartekjur í landinu samanborið við áttfaldar tekjur á síðasta áratug. Sagði Kristrún þetta verða helstu ástæðu þess að vaxtahækkanir séu svona sársaukafullar, fólk skuldi meira í húsnæði sínu því hvert prósentustig vegi þyngra. Hömluleysið á húsnæðismarkaði er rót verðbólgunnar í dag að mati Kristrúnar. 

Fyrirheit brostin 

Þá sagði Kristrún ríkisstjórnina hafa brugðist því að tryggja húsnæðisöryggi fólks. Miðað við fjármálaáætlun til næstu ára sé ljóst að öll fyrirheit um stórkostlega uppbyggingu í húsnæðismálum séu brostin. 

Jafnframt sagði Kristrún samningsleysi við sérfræðilækna hafa kallað margra milljarða króna aukareikninga yfir viðkvæmasta hópinn í landinu. Fólk þurfi nú að borga fyrir öryggi sitt úr eigin vasa, sem síðan birtist í auknum launakröfum. 

Kristrún sagði ríkisstjórnina eftirláta ókjörnum embættismönnum í Seðlabankanum einum að taka risastórar ákvarðanir sem hafa veruleg áhrif á daglegt líf fólks í stað þess að taka ábyrgð. En þó Seðlabankinn hafi það hlutverk að tryggja verðstöðugleika þá hafi hann takmörkuð tól til þess að tryggja jöfnuð í landinu. 

Að lokum sagði Kristrún að á næstu dögum myndi Samfylkingin leggja fram tillögur um vaxtabætur og að Samfylkingin hafi ítrekað beðið ríkisstjórnina um að setjast niður með verkalýðshreyfingunni til þess að útfæra tímabundna leigubremsu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert