Mikið hugrekki og æðruleysi fólksins

Dagur B. Eggertsson.
Dagur B. Eggertsson. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Þó maður hafi fylgst vel með ástandinu í Úkraínu vissi ég ekkert við hverju var að búast,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri um ferðalag sitt til Lvív, vinaborgar Reykjavíkur, á þriðjudaginn í síðustu viku, en borgin er í vesturhluta Úkraínu.

Ekki er flogið beint til Úkraínu og þurfti Dagur og föruneyti hans því að lenda í Kraká í Póllandi, þar sem við tók sjö klukkutíma bílferð, sem hafi gengið vel, þó hún væri löng.

Lífið gengur sinn vanagang á skólalóðinni, fyrir utan sandpokana sem …
Lífið gengur sinn vanagang á skólalóðinni, fyrir utan sandpokana sem eiga að verja gegn árásum Rússa. Ljósmynd/Dagur B. Eggertsson

Fjöldi ungs fólks á torgum

Íslendingarnir voru komnir til Lvív um miðnætti, en þá skellur á útgöngubann um alla Úkraínu. Dagur segir að það hafi komið sér á óvart hversu margir voru á ferli þrátt fyrir að stutt væri í útgöngubannið.

„Það var fjöldi ungs fólks á torgum, sem söng fjöldasöng sem lauk á því að það hrópaði „Slava Ukraina,““ segir Dagur, sem segist gruna að þetta sé leið fólksins til þess að standa saman gegn stríðinu.

Frekari umfjöllun má lesa í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert