Efling hefur skrifað undir samning við ríkið

Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, formaður Efl­ing­ar.
Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, formaður Efl­ing­ar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Samninganefnd Eflingar skrifaði undir kjarasamning við ríkið í gærkvöldi. Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, formaður Efl­ing­ar, greindi frá þessu í Facebook-færslu. 

Fyrir tæplega þremur vikum vísaði Efling kjaradeilunni til ríkissáttasemjara en fjölmargir félagsmenn Eflingar starfa hjá ríkinu. Stærsti hópurinn er við störf á Landspítalanum og smærri hópar á ýmsum ríkisstofnunum. 

Við náðum þeim markmiðum sem við settum okkur og erum sátt,“ segir í færslu Sólveigar. 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert