Ekið á mann á rafskútu

Tilkynning um slysið barst lögreglu laust fyrir hádegi.
Tilkynning um slysið barst lögreglu laust fyrir hádegi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ekið var á karlmann á rafskútu á Akureyri fyrr í dag. Maðurinn var fluttur til skoðunar á bráðamóttökuna á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þetta staðfestir Árni Páll Jóhannsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Akureyri. RÚV greindi fyrst frá. 

Tilkynning um slysið barst laust fyrir hádegi en það varð við gatnamót Brekkugötu og Oddeyrargötu.

Í frétt RÚV segir að gatnamótunum hafi verið lokað í kjölfarið og að talsverður viðbúnaður lögreglumanna hafi verið þar.

Í samtali við mbl.is segir Árni Páll engan viðbúnað á vettvangi lengur. Þá kvaðst hann ekki vera með upplýsingar um líðan mannsins sem ekið var á en að ökumaður bílsins hafi sloppið ómeiddur. Umferðarslysið verður rannsakað af lögreglunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert