Komst upp um svikahrappa

mbl.is/Eggert

Lögreglan á Norðurlandi eystra hafði í gær afskipti af tveimur karlmönnum af erlendum uppruna, sem voru við verslanir á Akureyri, að betla peninga af fólki undir því yfirskini að þeir væru að safna fé til styrktar heyrnardaufum. 

Lögreglan segir í tilkynningu, að annar mannanna hafi þóst tala táknmál en kunnáttuleysi hans á því sviði hafi verið afhjúpað þegar hann vatt sér að konu sem kunni táknmál.

„Við nánari skoðun á þessum mönnum kom í ljós að þeir voru ekki að safna fé fyrir nein samtök og höfðu því vissulega engin leyfi til slíks. Þeir voru því að svíkja fé af fólki en virðast þó ekki hafa haft mikið upp úr krafsinu að þessu sinni. Þeir eru í löglegri dvöl hér á landi en við erum nú að skoða hvort þeir kunni að hafa tengsl við fleiri við sömu iðju og þá hvort þetta er stundað með skipulögðum hætti,“ segir í tilkynningu lögreglu. 

„Þess vegna viljum við gjarnan fá að vita af því ef þið verðið vör við vafasamar peningasafnanir af þessu tagi. Þá er hægt að senda tilkynningu á netfangið nordurland.eystra@logreglan.is og tilgreina þar stað og stund, lýsingu á aðilum o.s.frv. Ef þið eruð viss um að verið sé að betla fé undir fölsku yfirskini er hægt að hringja í 112 og óska eftir lögreglu á staðinn. Við skulum samt hafa í huga að félagasamtök geta fengið leyfi til opinberra safnana, sölu á happdrættismiðum og þess háttar en eðlilegt er að þeir sem það gera séu merktir félaginu og geti framvísað leyfisbréfi fyrir söfnuninni,“ segir lögreglan enn fremur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert