Vopnaður með þýfi að andvirði 200 þúsund króna

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Vopnaður einstaklingur var handtekinn vegna þjófnaðar úr verslun. 

Í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að andvirði þýfisins hafi verið 200 þúsund krónur. Einstaklingurinn var látinn laus að skýrslutöku lokinni. 

Þá olli ökumaður umferðaróhappi og flúði vettvang. Lögreglan fann ökumanninn stutt frá vettvangi og reyndist hann þá hafa verið sviptur ökuréttindum. Að auki er hann grunaður um akstur undir áhrifum áfengis. 

Einstaklingurinn var vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert