Hafa safnað 38 milljónum króna

Uppselt var í Eldborgarsalnum.
Uppselt var í Eldborgarsalnum. Ljósmynd/Harpa

38 milljónir króna söfnuðust á styrktartónleikunum Vaknaðu! sem voru haldnir annan í Hvítasunnu. Það var tónlistarkonan Ellen Kristjánsdóttir sem stóð fyrir tónleikunum í samstarfi við Hörpu, RÚV og fleiri. Í fréttatilkynningu segir að samstaða hafi einkennt stemninguna í Eldborgarsal Hörpu.

Tónleikarnir voru haldnir til styrktar skaðaminnkunarúrræði Rauða krossins, Frú Ragnheiður, en einnig líka til að vekja athygli á ópíóíðafaraldrinum sem geisar á Íslandi. Söfnunin stendur enn yfir og er komin upp í 38 milljónir króna. Hægt er að styrkja málefnið í gegnum  heimasíðu Rauða krossins.

Tilkynningin í heild sinni:

„Samstaða einkenndi stemninguna í Eldborg á meðan neyðartónleikarnir Vaknaðu! fóru fram, en tónleikarnir voru samtímis sendir út í sjónvarpi RÚV. Þau Ragga Gísla, Bubbi, Nanna, Jónas Sig, Systur, Herra Hnetusmjör, Mugison, Emmsjé Gauti, Una Torfa, Elín Hall, Ólafur Bjarki, Ellen Kristjáns og fjöldinn allur af öðru frábæru tónlistarfólki ljáði málstaðnum krafta sína.

Tilgangur tónleikanna var tvíþættur, að safna fyrir skaðaminnkunarverkefni Rauða krossins, ber þar helst að nefna Frú Ragnheiði, auk þess að vekja fólk til meðvitundar um þá skelfilegu ógn sem stafar af rísandi ópíóíðafaraldri hérlendis.

Eina leiðin er leið kærleikans

Kynnar kvöldsins, þau Gunni Hilmars og Sigga Eyþórs, fluttu skýr skilaboð um það hvernig núverandi kerfi, sem byggir á hörku og refsingum, hefur ekki skilað árangri og muni ekki skila árangri, heldur þurfi að endurskoða aðferðirnar og nálgast málefnið út frá skaðaminnkandi hugmyndafræði. Tónlistarfólkið sem fram kom var á sama máli, en Jónas Sig kom hugmyndafræðinni svo fallega í orð þegar hann sagði: „…eina leiðin er leið kærleikans og að mæta hvort öðru með samkennd. Að sýna aðstæðum fólks skilning, hlúa að hvert öðru þegar við mögulega getum með nálgunum eins og skaðaminnkun sem byggja á hlýju og skilningi.“

Inn á milli tónlistaratriða voru sýnd innslög með viðtölum við aðstandendur, viðbragðsaðila og fyrrum neytanda ásamt hvatningu frá þjóðþekktum einstaklingum.

Nú þegar hafa safnast tæplega fjörutíu milljónir króna en söfnunin er ennþá í fullum gangi. Hægt er að gera það í gegnum heimasíðu heimasíðu Rauða krossins.“

Í umfjöllun Morgunblaðsins fyrr í vikunni var sagt að söfnunarkerfi Vodafone hefði „hrunið“ á meðan tónleikunum stóð. Eins og fram kom í tilkynningu frá Vodafone fyrr í dag þá virkaði kerfið allan tímann og allt söfnunarfé skilaði sér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert