Leyft að skála en hrísgrjón bönnuð

Nú styttist í að pör geti gift sig í Ráðhúsi …
Nú styttist í að pör geti gift sig í Ráðhúsi Reykvíkinga. mbl.is/Ómar Óskarsson

Nú styttist í að pör geti gift sig í Ráðhúsi Reykvíkinga. Forsætisnefnd hefur staðfest reglur þar að lútandi og tóku þær gildi 15. maí sl. Fyrirkomulagið verður kynnt fljótlega og heimasíða opnuð.

Samkvæmt reglunum verður leyfilegt að skála að athöfn lokinni en ekki verður leyft að vera með hrísgrjón, sápukúlur, glitpappír (konfettí) og þess háttar. Hægt er að leigja glös í Ráðhúsi sé þess óskað samkvæmt gjaldskrá.

Hægt verður að leigja rými fyrir hjónavígslur í Ráðhúsinu. Um er að ræða tvo sali á þriðju hæð í norðurhluta hússins, Turn og Tjarnarbúð, ásamt rými í Tjarnarsal. Ekki er enn frágengið hve margir vikudagar verða í boði.

Nán­ari um­fjöll­un er að finna í Morg­un­blaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert