Spáð er vestlægri eða breytilegri átt, víða 5-10 metrum á sekúndu. Skýjað verður að mestu á vestanverðu landinu og sumstaðar lítilsháttar væta.
Yfirleitt verður bjart austantil á landinu en líkur á stöku skúrum. Hiti verður á bilinu 6 til 16 stig, hlýjast austantil.
Seint á morgun snýst í suðlæga átt, 8-13 m/s, og fer að rigna vestanlands, en hægari og yfirleitt bjart eystra. Hiti verður á bilinu 9 til 17 stig, hlýjast á Norðausturlandi.