Hafísinn færist nær

Kort af haf­ísn­um byggt á SENTINEL-1 ratsjármynd frá Copernicus EU.
Kort af haf­ísn­um byggt á SENTINEL-1 ratsjármynd frá Copernicus EU. Kort/​HÍ

Hafísinn sem rekið hefur norðan Hornstranda undanfarna daga færist nær landi. Á korti byggðu á ratsjármynd sem Rannsóknarstofa í eldfjallafræði og náttúruvá við Háskóla Íslands birti í morgun má sjá hvar hafísspöngina rekur um 15 sjómílur norðvestan við Barða, 23 sjómílur norðan Hornbjargs og 15 sjómílur norðaustan Drangahlíðar á Ströndum.

Sérfræðingar rannsóknarstofunnar telja líklegt að ísinn færist enn nær næstu daga enda er áfram spáð suðvestlægum áttum á svæðinu.

Sjófarendur hafi varann á

Ástæða er til að vara sjófarendur við þar sem innan um vetrarísinn gætu leynst eldri og þykkari hafísjakar og borgarísjakar sem geta verið hættulegir skipum. Þá bendir rannsóknarstofan þeim sem standa að fiskeldi inni á fjörðum að fylgjast með þróuninni næstu daga.

Flogið yfir hafís norðvestur af landinu í júlí árið 2019.
Flogið yfir hafís norðvestur af landinu í júlí árið 2019. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert