Kanna nýja skattalega umgjörð um orkuvinnslu

Skipaður hefur verið starfshópur um orkuvinnslu.
Skipaður hefur verið starfshópur um orkuvinnslu. Árni Sæberg

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur skipað starfshóp sem falið er að hefja skoðun á skattalegu umhverfi orkuvinnslu. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

„Markmiðið er að skapa nýja skattalega umgjörð fyrir vinnsluna og kanna leiðir til að ávinningur vegna auðlindanýtingar, þ.m.t. vegna orkuframleiðslu, skili sér í ríkari mæli til nærsamfélaga og þeirra aðila sem fyrir áhrifum verða.

Starfshópurinn skal afla upplýsinga og gagna um úrlausnarefnið ásamt því að skoða þau atriði sem fram koma í stöðuskýrslu starfshóps um málefni vindorku sem skilað var til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í apríl,“ segir í tilkynningu. 

Fimm í starfshópnum 

Starfshópinn skipa: Hilmar Gunnlaugsson, skipaður af fjármála- og efnahagsráðuneyti, formaður, Kristín Haraldsdóttir skipuð af fjármála- og efnahagsráðuneyti, Erla Sigríður Gestsdóttir, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, Daníel Svavarsson, forsætisráðuneyti, Árni Sverrir Hafsteinsson, innviðaráðuneyti.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert