Ríkisstjórnin túlki neyðaróp sem gleðióp

Inga er ekki sátt með ríkisstjórnina.
Inga er ekki sátt með ríkisstjórnina. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, fór hörðum orðum um ríkisstjórnina í eldhúsdagsumræðum sem nú standa yfir á Alþingi. 

Sagðist Inga aldrei hafa upplifað jafn mikið vonleysi og sorg í íslensku samfélagi eins og nú. Sagði hún ríkisstjórnina hunsa neyðaróp landsmanna

„Þessi ríkisstjórn hefur stungið fingrunum í eyrun og kosið að túlka neyðarópin sem gleðióp þeirra sem hafa það að meðaltali alveg rosalega gott,“ sagði Inga.

Kvíðir fyrir því að skoða póstinn

Sagðist Inga kvíða því á hverjum degi að opna póstinn sinn þar sem hún fái tugi tölvupósta á hverjum degi frá fátæku fólki í neyð. 

Kallaði Inga eftir því að ríkisstjórnin myndi hætta að skattleggja fátæka. „Ágæta ríkisstjórn, í guðanna bænum farið að vakna og farið að hjálpa þeim sem raunverulega eru að kalla á hjálp og eru að drukkna.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert