Afhenda Alþingi 360.000 undirskriftir í dag

Hvalir í Steingrímsfirði.
Hvalir í Steingrímsfirði. Ljósmynd/Jón Halldórsson

Hvalavinir afhenda Alþingi undirskriftalista á alþjóðlegum degi hafsins í dag, 8. júní klukkan 11.30. Í beiðni Hvalavina segir að hræðileg meðferð á dýrum með þessum hætti sé óviðunnandi og krefst hópurinn þess að hvalveiðileyfi verði tafarlaust afturkallað, að því er fram kemur í tilkynningu.

Fulltrúi Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra hefur ekki staðfest hvort einhver frá skrifstofu hennar verði til taks á Alþingi til að taka við beiðninni.

„Hrottalegu drápin verði stöðvuð og bönnuð“

„Ríflega 360.000 manns hafa á innan við mánuði skrifað undir alþjóðlega undirskriftasöfnun þar sem krafist er að íslensk stjórnvöld svipti Hval hf. leyfi til hvalveiða og að hrottalegu drápin verði stöðvuð og bönnuð í eitt skipti fyrir öll,“ er haft eftir Valgerði Árnadóttur hjá Hvalavinum í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert