Beint: „200 þúsund tonn af tækifærum“

Kynning á tillögum starfshóps skipuðum af Guðlaugi Þór Þórðarsyni, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, um hvernig flýta megi innleiðingu hringrásarhagkerfisins, verður haldin á Kex Hostel klukkan 15 í dag.

Ráðherra skipaði starfshópinn síðasta haust og hefur hann nú skilað ráðherra tillögum sínum, „200 þúsund tonn af tækifærum“ um aðgerðir til að koma verkefnum sem tengjast hringrásarhagkerfinu af stað.

Kortlagði 200 þúsund tonn af úrgangi

Heiti kynningarinnar vísar til þess að við vinnu sína kortlagði hópurinn um 200 þúsund tonn af úrgangi sem hefur hingað til verið urðaður en sem breyta mætti í verðmæti og draga þannig úr sóun.

Fylgjast má með kynningunni í beinu streymi hér:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert