Hefur áhrif á hátíðarhöld

Framkvæmdin mun ekki hafa teljandi áhrif á umferð um garðinn …
Framkvæmdin mun ekki hafa teljandi áhrif á umferð um garðinn eða nágrenni hans en mun þó setja mark á viðburðahald í sumar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Framkvæmdir við að styrkja og byggja upp viðburðasvæðið í Hljómskálagarðinum eru í fullum gangi. Áformað er að þeim ljúki fyrir 31. júlí næstkomandi. Framkvæmdirnar munu ekki hafa teljandi áhrif á umferð um garðinn eða nágrenni hans en munu þó setja mark á viðburðahald í sumar. Til að mynda verða hátíðahöld 17. júní að fara fram utan þessa svæðis í Hljómskálagarðinum, eins og fram kemur í tilkynningu á heimasíðu Reykjavíkurborgar.

Framkvæmdirnar eru til að svæðið þoli betur álag stórra viðburða og hægt sé að fjölga þeim í garðinum. Þá verður slitþolið gras lagt á svæðið og á norðurhluta grasflatarinnar verður upphækkað svæði með góðri burðargetu. Gunnar Hersveinn, verkefnastjóri miðlunar hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, segir að viðburðir verði haldnir í garðinum í sumar en þeir verði á öðrum stöðum í honum og aðeins minni í sniðum.

Nán­ari um­fjöll­un má finna í Morg­un­blaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert