Tólf hljóta Fulbright-styrk

Styrkþegar ásamt Carrin Patman, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, og Belindu …
Styrkþegar ásamt Carrin Patman, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, og Belindu Theriault, framkvæmdastjóra Fulbright-stofnunarinnar á Íslandi. Ljósmynd/Aðsend

Tólf Íslendingar hljóta í ár Fulbright-styrk, sem samnefnd stofnun veitir íslenskum og bandarískum náms- og fræðimönnum árlega.

Samkvæmt tilkynningu frá stofnuninni var móttaka til heiðurs íslensku styrkþegunum haldin 6. júní í Iðnó. Fengu þar níu Íslendingar styrk til framhaldsnáms og rannsókna við bandaríska háskóla, og þrír styrk til sumarnámskeiða í Bandaríkjunum.

Íslendingarnir sem hljóta Fulbright-styrk:

  • Arnhildur Tómasdóttir, til mastersnáms í erfðaráðgjöf við Stanford-háskóla
  • Gríma Irmudóttir, til mastersnáms í heimildarmyndagerð við Northwestern-háskóla
  • Hrafnkell Guðjónsson, til mastersnáms í mannréttindalögfræði við Kaliforníuháskóla, Berkeley
  • Ivana Nikolic, til mastersnáms í mannréttindalögfræði við Harvard-háskóla
  • Jónatan Hróbjartsson, til mastersnáms í viðskiptalögfræði við Duke-háskóla
  • Sigurbjörn Bernharð Edvardsson, til mastersnáms í alþjóðalögum við Harvard-háskóla
  • Emil Dagsson, til doktorsrannsókna í hagfræði við Brown-háskóla
  • Guðbjörg Ríkey Thoroddsen, til doktorsrannsókna í alþjóðasamskiptum við Harvard-háskóla
  • Sólveig Sanchez, til doktorsrannsókna í umhverfisfræði við Kaliforníuháskóla
  • Eybjört Ísól Torfadóttir, til þátttöku á sumarnámskeiði við Wisconsin-háskóla
  • Þór Ástþórsson, til þátttöku á sumarnámskeiði við Wisconsin-háskóla
  • Embla Rún Halldórsdóttir, til þátttöku í sumarnámsstefnu á sviði umhverfismála við Shippensburg-háskóla
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert