Loka sendiráði Íslands í Moskvu

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra kallaði Mík­haíl Noskov, sendiherra Rússlands …
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra kallaði Mík­haíl Noskov, sendiherra Rússlands á Íslandi, á fund til sín og tilkynnti honum um ákvörðunina. Árni Þór Sigurðsson er sendiherra Íslands í Moskvu, en loka á sendiráðinu. Samsett mynd

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra hefur ákveðið að leggja niður starfsemi sendiráðs Íslands í Moskvu frá 1. ágúst næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. 

Að því er fram kemur í tilkynningunni var sendiherra Rússlands kallaður á fund í dag í ráðuneytinu og honum tilkynnt þessi ákvörðun. 

Þá var honum tjáð að gert sé ráð fyrir að Rússland lækki fyrirsvar sitt þannig að sendiherra stýri ekki lengur sendiráði Rússlands í Reykjavík. Þá hefur Rússlandi verið gert að lágmarka starfsemi sendiráðsins á Íslandi til samræmis við þessa ákvörðun.

Ákvörðun um að leggja niður starfsemi sendiráðsins er tekin í ljósi þess að það samræmist ekki forgangsröðun í utanríkisþjónustu Íslands að starfrækja sendiskrifstofu í Moskvu við núverandi aðstæður. 

„Öll samskipti við Rússland eru í lágmarki hvort sem litið er til viðskiptalegra, menningarlegra eða stjórnmálalegra tengsla. Forsendur fyrir starfsemi sendiráðs í Moskvu eru því gjörbreyttar.

Ísland hefur rekið sendiráð í Moskvu frá árinu 1944 að undanskildum árunum 1951-1953 þegar viðskipti lágu niðri milli ríkjanna. Sovétríkin höfðu ekki sendiherra á Íslandi á árunum 1948-1954.

Ákvörðun um að leggja niður starfsemi sendiráðsins felur ekki í sér slit á stjórnmálasambandi ríkjanna. Um leið og aðstæður leyfa verður lögð áhersla á að hefja starfsemi sendiráðs Íslands í Moskvu á ný,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert