SÍS skorar á BSRB

Frá baráttufundi BSRB í Bæjarbíó Hafnarfirði í lok síðasta mánaðar.
Frá baráttufundi BSRB í Bæjarbíó Hafnarfirði í lok síðasta mánaðar. mbl.is/Arnþór

Samband íslenskra sveitarfélaga skorar á BSRB að taka hluta auglýsinga sinna úr birtingu sem félagið kallar ólögmætar áróðursauglýsingar, kemur fram í tilkynningu sambandsins.

Auglýsingarnar séu birtar undir nafni sveitarfélaga án heimildar frá stjórnum þeirra. Í auglýsingunum sé farið með rangt mál og sveitarfélögum gerður upp ásetningur og athafnir sem með engu móti samrýmast stefnu þeirra í mannauðs- og launamálum, segir í tilkynningunni.

Þá kemur jafnframt fram að Samband íslenskra sveitarfélaga hafi margoft rætt við stjórn BSRB og bæjarstarfsmannafélögin um að láta af birtingu þessara auglýsinga og jafnframt að allar opinberar birtingar í hvaða formi sem er verði fjarlægðar og hætt. BSRB hafi ekki brugðist við þessu.

Samband íslenskra sveitarfélaga skorar á BSRB að taka auglýsingarnar úr birtingu fyrir kl. 16:00 í dag, kemur að lokum fram í tilkynningunni.

Tilkynninguna í heild má lesa hér:

Skorað á BSRB að láta af ólögmætum áróðursauglýsingum

Undanfarnar vikur hefur BSRB og bæjarstarfsmannafélög innan bandalagsins staðið fyrir ólögmætri áróðursauglýsingaherferð sem birt er víða um land vegna verkfalla bæjarstarfsmannafélaga. 

Auglýsingarnar eru birtar undir nafni sveitarfélaga án heimildar frá stjórnum þeirra. Í þeim er farið með rangt mál og sveitarfélögum gerður upp ásetningur og athafnir sem með engu móti samrýmast stefnu þeirra í mannauðs- og launamálum.

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur margoft rætt við stjórn BSRB og bæjarstarfsmannafélögin um að láta nú þegar af allri ólögmætri birtingu og dreifingu auglýsinga í nafni sveitarfélaga. Einnig að allar opinberar birtingar í hvaða formi sem er verði þegar fjarlægðar og þeim hætt. Við því hefur ekki verið brugðist.

Samband íslenskra sveitarfélaga skorar á BSRB að taka auglýsingarnar úr birtingu fyrir kl. 16:00 í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert