Víða rigning eða súld

Skil mjakast nú yfir landið og því verður víða rigning …
Skil mjakast nú yfir landið og því verður víða rigning eða súld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sunnan og suðvestan kaldi eða strekkingur verða á landinu í dag og víða rigning eða súld. Skil mjakast nú austur yfir landið. 

Dregur úr vindi og úrkomu vestanlands með morgninum og verða dálitlar skúrir þar eftir hádegi. Það verður hins vegar lengst af þurrt um landið norðaustanvert. 

Hiti verður 8 til 18 stig, hlýjast norðaustan til. 

Vestan og suðvestan 5-13 m/s verða á morgun og stöku skúrir, en dálítil rigning austast á landinu fram eftir degi. Á Suðurlandi gæti þó allvíða orðið þurrt og bjart. Það kólnar heldur, hiti verður yfirleitt á bilinu 7 til 15 stig, mildast verður suðaustan til.

Á sunnudag er svo útlit fyrir bjart veður víða um land, en þó gæti blásið nokkuð hraustlega á norðanverðu landinu. Hiti verður þá 8 til 12 stig, en um landið austanvert verður hiti 12 til 20 stig. Það gæti því verið að landsmenn sem komnir eru í sumarfrí, og ekki hafa flúið á sólríkari staði í útlöndum, flykkist austur í hitann. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert