900 þátttakendur í Hengilshlaupinu

900 hlauparar tóku þátt.
900 hlauparar tóku þátt. Ljósmynd/ Mummi Lú

Rúmlega 900 hlauparar tóku þátt í Hengill Ultra hlaupinu í dag og í gær. Hlaupaleiðin liggur um uppland Hveragerðis og Ölfus. 

Þetta var í tólfta skipti sem mótið er haldið.

Adan Komoriwski frá Póllandi sigraði hundrað mílna hluta keppninnar og Rúmeninn Mihai Serban endaði í öðru sæti. Reyndar voru Serban og Komoriwski þeir einu sem kláruðu, af þeim fimm sem hófu keppni í 100 mílna vegalengdinni.

Sölvi Snær Egilsson og Dalrós Ingadóttir sigruðu 106 kílómetra hluta mótsins.

Thelma Björk Einarsdóttir kom svo fyrst í mark í 53 kílómetra dagleiðinni. Sló hún í leiðinni brautarmet með tímanum 5:27:23. Sigurjón Ernir Sturluson sigraði karlaflokkinn með nýju persónulegu meti í þessari vegalengd.

Dalrós Ingadóttir og Sölvi Snær Egilsson.
Dalrós Ingadóttir og Sölvi Snær Egilsson. Ljósmynd/ Mummi Lú
Ljósmynd/ Mummi Lú
Ljósmynd/ Mummi Lú
Ljósmynd/ Mummi Lú
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert