Íslensk hrollvekja á nýjum skala

Jóhannes Haukur leikur í kvikmyndum og sjónvarpi víða um heim. …
Jóhannes Haukur leikur í kvikmyndum og sjónvarpi víða um heim. Hann leikur í Kulda, nýrri íslenskri hrollvekju, sem frumsýnd er á föstudaginn. mbl.is/Ásdís

Á svölunum hjá kvikmyndaleikaranum Jóhannesi Hauki Jóhannessyni er steikjandi hiti og ef ég vissi ekki að við værum í Reykjavík, gæti ég eins verið í mekka kvikmyndaiðnaðarins, Hollywood. Í heimi kvikmyndastjarna skín jú sólin allan ársins hring. Jóhannes, sem er dálítið sólbrenndur eftir íslenska sumarið, segist ekkert vera að sækjast eftir stjörnulífinu vestanhafs. Hann er sáttur við að búa í Laugardalnum með eiginkonu og börnum, og þótt hann dvelji oft erlendis í kvikmynda- og sjónvarpsverkefnum, fær hann góð frí inn á milli. Hann var einmitt á leiðinni til Rómar að leika skylmingaþræl en Íslendingar fá að berja hann augum á hvíta tjaldinu í næstu viku í hrollvekjunni Kulda. Jóhannes lofar að þá muni vatnið renna milli skinns og hörunds áhorfenda.

Súrdeigsgrunnur og tvö grill

Jóhannes útskrifaðist úr leiklistinni árið 2005, þá 25 ára gamall.

„Ég var mjög heppinn að fá strax hlutverk í atvinnuleikhúsi á meðan ég var enn í leiklistarnámi og við Gói fengum hlutverk í Grease sem gekk allan veturinn á öðru ári okkar í Listaháskólanum. Síðan var Hárið sett upp í Austurbæ árið þar á eftir og þar vorum við líka að leika. Magnús Geir, sem var þá tekinn við leikhúsinu fyrir norðan, fékk okkur Góa til að koma norður strax eftir útskrift og þar var ég í eitt ár sem var mikill skóli,“ segir Jóhannes og í þann mund pípir síminn hástöfum.

„Heyrðu, ég þarf að taka lokið af pottinum; ég er að baka brauð!“

Spurður hvort hann sé mikill bakari, svarar Jóhannes:

„Þegar maður er orðinn 43 ára fær maður sér kerru, háþrýstidælu og súrdeigsgrunn. Og tvö grill; kolagrill og gasgrill,“ segir hann og hlær.

Við snúum okkur aftur að ferlinum, en Jóhannes segist síðan hafa farið á samning hjá Þjóðleikhúsinu og síðar Borgarleikhúsinu.

„Mig vantaði svo sem aldrei vinnu. Ég var lengst af í Þjóðleikhúsinu og var þar til 2014 þegar vinnan erlendis fór að rúlla,“ segir hann.

Ævintýri lærisveins í Marokkó

„Það var eftir Svartur á leik að ég fékk fyrst umboðsmann í útlöndum, en allar ráðningar erlendis fara í gegnum umboðsmann,“ segir Jóhannes og segir söguna af því hvernig það vildi til að hann fékk sér umboðsmann.

„Þorvaldur Davíð, sem lék líka í Svartur á leik, er þá að útskrifast úr Juilliard. Hann var kominn inn undir hjá umboðsskrifstofu í Bandaríkjunum og lætur þau fá eintak af þessari bíómynd. Þar er gæi sem heitir Matthew sem var þá að stofna sína eigin umboðsskrifstofu ásamt vini sínum sem líka heitir Matthew; eins konar Skapti og Skafti,“ segir hann og brosir.

„Þeir voru að leita að spennandi evrópskum leikurum og horfðu á þessa mynd, en Þorvaldur var þá frátekinn hjá sinni umboðsskrifstofu. Matthew hafði þá samband við mig og ég sló til. Þeir voru svo að græja einhverjar prufur en ég fékk ekkert hlutverk fyrr en eftir tvö ár, árið 2014. Þá fæ ég allt í einu símtal. Prufan var þá komin alla leið og ég fékk hlutverk hjá NBC í þættinum A.D. Kingdom and Empire, sem fjallar um lærisveina Jesú eftir krossfestingu. Mér var sagt að tökur myndu hefjast í Marokkó þremur vikum síðar. Leikárið hér heima var ekki byrjað og ég var ekki í neinni sýningu sem var að halda áfram, þannig að ég fékk ársleyfi og fór í þetta verkefni,“ segir Jóhannes sem lék þá Tómas, einn af lærisveinunum. Hann varð ekki fyrir vonbrigðum.

„Þetta var þvílíkt ævintýri!“

Ég brotna ekki

Leið þér eins og kvikmyndastjörnu?

„Já, aðeins. Það er alltaf góður aðbúnaður og aðstaða þegar maður er í svona verkefnum. Þarna vorum við öll saman á hóteli í eyðimörkinni í fjöllunum í Marokkó og náðum að kynnast rosalega vel. Ég hélt þá að þetta væri alltaf þannig en hef lært síðan að það er ekki svo. Það er bara svona ef tökur eru á afskekktum stöðum að allir verði rosa góðir vinir. Þegar maður er í tökum í London eða New York er maður ekki mikið að hitta fólk utan vinnutíma.“

Varstu stressaður í þessu fyrsta verkefni?

„Já, já! Umgjörðin og íburðurinn hræðir mann; snjóvélar og „green screen“ og alls konar. Ég heyrði setningu sem á vel við: Under pressure, you don´t rise to the occasion; you sink to the level of your training. Þannig að undir pressu kemur reynslan til góða og það bjargar mér að hafa staðið á sviði þúsund sinnum og að hafa leikið heima í bíómyndum. Ég er alveg búinn að gera þetta áður. Þannig að þrátt fyrir stress þá kemst ég í gegnum það. Ég brotna ekki,“ segir Jóhannes og segist hafa sjóast mikið síðan þá.

Konan er öryggisnetið

Eftir að hafa landað hlutverkinu í A.D. hjá NBC fór boltinn að rúlla og Matthew og Matthew fundu einnig umboðsmann fyrir Jóhannes í Bretlandi sem þeir hófu samstarf við.

„Ég fór til London í nokkra daga og úr varð samstarf við einn og hann græjaði strax prufur fyrir Game of Thrones. Lykilatriðið við að halda þessu áfram var að þora að biðja um áframhaldandi leyfi við Þjóðleikhúsið. Ég vildi gefa þessu séns og ég hefði aldrei þorað því ef konan mín væri ekki í góðri vinnu hjá Seðlabankanum og væri til í þetta. Ég vissi þá að ef það færi allt á versta veg og ég fengi ekkert að gera, að við værum samt alveg í lagi,“ segir Jóhannes, en kona hans er Rósa Björk Sveinsdóttir, hagfræðingur.

„Hún er litla öryggisnetið mitt,“ segir hann og hlær.

Þegar Jóhannes fékk boð um að koma í prufu fyrir Game of Thrones voru fimm seríur búnar og þátturinn orðinn sá stærsti í sögu sjónvarps.

„Þetta var fyrir sjöttu seríu. Ég hafði ekki séð þetta en konan var að horfa,“ segir Jóhannes sem lék í tveimur þáttum í þessari seríu.

Jóhannes segir gott fyrir ferilinn að vera með Game of …
Jóhannes segir gott fyrir ferilinn að vera með Game of Thrones-hlutverk á ferilskránni. Þar lék hann lítið hlutverk í tveimur þáttum.

„Þetta var ekki stórt hlutverk en það sem ég tók eftir var að um leið og ég var kominn með Game of Thrones á ferilskrána fór ég að fá fleiri prufur. Oft vilja leikstjórar ekkert fá prufur frá öllum heldur skima yfir ferilskrá og velja úr. Þannig að eftir þetta voru miklu fleiri sem vildu sjá mig og því fékk ég fleiri tilboð. En í 90% tilfella fæ ég enn nei,“ segir Jóhannes og segist ekki kippa sér upp við höfnun.

Gúmmíhúðuð bambussverð

Um það bil þegar heimsfaraldurinn skall á fékk Jóhannes hlutverk í Vikings sem voru teknir upp í Dublin. Jóhannes lék í tveimur seríum, árið 2020 og 2021.

„Þar var kannski stundum farið frjálslega með sögulegar staðreyndir, en þetta eru vel heppnaðir og skemmtilegir þættir sem hafa gengið feykivel á Netflix,“ segir Jóhannes sem lék einnig nýlega í lokaseríunni af Succession, þeim geysivinsæla bandaríska þætti.

Jóhannes sést hér í Succesion, þeim geysivinsæla bandaríska þætti, ásamt …
Jóhannes sést hér í Succesion, þeim geysivinsæla bandaríska þætti, ásamt leikaranum Alexander Skarsgård.

„Ég var þar á kantinum og hafði ekkert mikið að segja þannig séð. Ég fylgdi þar Alexander Skarsgård og það var frábært að vera þarna og fylgjast með þessum leikurum sem ég hef horft á í þremur þáttaröðum,“ segir hann og segir þetta hafa verið afar góða reynslu.

Í dag er Jóhannes að leika í sjónvarpsseríu sem tekin er upp í Róm og heitir Those about to die. Anthony Hopkins leikur þar keisara og er Jóhannes einn af skylmingaþrælunum.

„Ég er búinn að eyða ansi mörgum stundum í að æfa bardagasenurnar, en ég er þarna í þokkalega stóru hlutverki og verð í átta af tíu þáttum,“ segir hann og nefnir að leikstjórinn sé Roland Emmerich sem er þekktur fyrir stórslysa- og heimsendamyndir.

Jóhannes segir skylmingarnar ekki hættulegar.

„Við notum gúmmíhúðuð bambussverð en auðvitað gæti maður eitthvað meitt sig, en ekkert mikið. Það er aðallega mikið púl að læra þetta!“

Alvöru íslensk hrollvekja

Á föstudag, fyrsta september, verður kvikmyndin Kuldi frumsýnd og leikur Jóhannes þar eitt aðalhlutverka. Myndin er byggð á samnefndri bók Yrsu Sigurðardóttur.

„Leikstjórinn Erlingur Thoroddsen er spennandi leikstjóri og mikill hrollvekjusérfræðingur. Ég held að við séum að sjá hér íslenska hrollvekju á nýjum skala í hans höndum,“ segir Jóhannes og segist njóta þess mjög að leika á íslensku.

Jóhannes leikur á móti dóttur sinni, Ólöfu Höllu, sem leikur dóttur hans í myndinni.

„Mér fannst það frábært! Henni fannst frábært að leika í bíómyndinni en ekki jafn gaman að vera með mér alla daga. Hún er fimmtán og mikil nánd við pabba sinn er ekki efst á blaði,“ segir hann kíminn.

Kuldi er ný íslensk hrollvekja eftir bók Yrsu Sigurðardóttur. Jóhannes …
Kuldi er ný íslensk hrollvekja eftir bók Yrsu Sigurðardóttur. Jóhannes leikur þar á móti dóttur sinni, Ólöfu Höllu.

Í Kulda eru sagðar tvær sögur sem gerast á ólíkum tímum og virðast alveg óskyldar.

„En svo byrja sögurnar að tengjast. Ég leik mann hjá Barnaverndarstofu sem er að rannsaka mál upptökuheimilis; eitt drengjaheimili. Hin sagan er svo um drengjaheimilið fyrir þrjátíu árum. Í einkalífinu er ég að ala upp dóttur mína sem er nýbúin að missa mömmu sína,“ segir Jóhannes og segir myndina alvöru hrollvekju.

„Tólf ára sonur minn leikur lítið hlutverk sem einn af drengjunum á drengjaheimilinu. Ég veit ekki hvort það sé endilega sniðugt að hann sjái myndina.“

Ítarlegt viðtal er við Jóhannes Hauk í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. 

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert