Arna Hauksdóttir, prófessor og forstöðumaður Miðstöðvar í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands, hefur tekið sæti í stjórn Vísindagarða Háskóla Íslands.
Frá þessu er greint í tilkynningu Vísindagarða.
Vísindagarðar eru samfélag nýsköpunar og rannsókna sem er til húsa í Vatnsmýrinni. Er markmið þess að styðja markvisst við hugvit til framþróunar og atvinnuuppbyggingar.
Stjórnina skipa nú Arna, Sigurður Magnús Garðarsson, stjórnarformaður, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs, Linda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar hjá Marel og stjórnarformaður Íslandsbanka, Kristinn Aspelund, framkvæmdastjóri Ankeri ehf. og stjórnarmaður í Samtökum sprotafyrirtækja, og Óli Jón Hertervig, skrifstofustjóri hjá Reykjavíkurborg.
Arna hefur lokið doktorsprófi í faraldursfræði við Karolinska Institutet í Stokkhólmi. Hefur hún starfað við Háskóla Íslands við kennslu og leiðbeiningu í meistara- og doktorsnámi í lýðheilsuvísindum frá árinu 2009. Samhliða þessu sinnir hún einnig rannsóknum í talsverðum mæli og þá aðallega á áhrifum áfalla á heilsu. Er hún ein af aðalrannsakendum rannsóknanna Áfallasaga kvenna og Líðan í Covid.
„Sem mikil háskólamanneskja finnst mér frábært að sjá hvernig háskólasvæðið hefur þróast til hins betra á síðustu árum. Vísindagarðar hafa spilað stórt hlutverk í þróun svæðisins, meðal annars með tilkomu Grósku sem hægt er að kalla suðupott nýsköpunar á Íslandi. Bæði faglega og persónulega hef ég haft mikla ánægju af því að vera staðsett á svæðinu. Samstarfið milli háskóla, sprotafyrirtækja, þekkingarfyrirtækja og rannsóknarstofnana finnst mér einstakt tækifæri til þess að skila verðmætum í íslensk samfélag. Það er mikil uppbygging fram undan og ég hlakka til að taka þátt í þessu starfi,“ er haft eftir Örnu í tilkynningunni.