Húsið sem skemmdist í hvassviðri á Siglufirði í gærkvöldi er söguleg skemma í síldarsögu landsins að sögn Örlygs Kristfinnssonar, fyrrverandi safnstjóra Síldarminjasafnsins á Siglufirði.
Þak hússins fór af að stórum hluta með þeim afleiðingum að brak dreifðist um stórt svæði þar í kring. Rýma þurfti eitt nærliggjandi hús og varð tjón á öðrum mannvirkjum í kring.
Vindur hefur verið mikill á Siglufirði í gær og í nótt, en lögregla lýsir vindstrengjunum sem gríðarlegum. Ekki er búist við að lægi fyrr en líður á kvöldið.
Örlygur segir húsið reist í kring um 1928 og var það frystihús Ásgeirs Péturssonar. Var skemman sjálf frystihúsið, en við enda hennar stóð og stendur enn frystivélasalur.
„Þetta er meðal fyrstu frystihúsa á landinu þar sem var notuð vélfrysting,“ segir Örlygur og kveður frystihúsið líklega fyrsta eða annað síns flokks hér á landi.
Hann segir frystihúsið notað allt fram að lokum síldaráranna á Siglufirði eða í kring um árið 1965. Var síldin sem þar var fryst að mestu notuð sem beitusíld í þágu þorskveiða.
Að sögn Örlygs var húsið notað sem geymslurými á síðustu árum, en húsið er í eigu Valgeirs Sigurðssonar, fyrrverandi veitingamanns.