Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað Eygló Harðardóttur formann stjórnar Sjúkratrygginga Íslands og Guðmund Magnússon varaformann. Ný inn í stjórnina kemur einnig Ólafía B. Rafnsdóttir.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.
Heilbrigðisráðherra skipar fimm manna stjórn Sjúkratrygginga Íslands í samræmi við lög um sjúkratryggingar nr. 112/2008. Stjórnin skal staðfesta skipulag stofnunarinnar, árlega starfsáætlun og fjárhagsáætlun og marka henni langtímastefnu. Skal stjórnin hafa eftirlit með starfsemi stofnunarinnar og að rekstur hennar sé innan ramma fjárlaga á hverjum tíma.
Formaður stjórnarinnar skal reglulega gera ráðherra grein fyrir starfsemi hennar og gera honum viðvart ef starfsemi og þjónusta er ekki í samræmi við ákvæði laga og ef rekstur er ekki í samræmi við fjárlög.
Auk Eyglóar og Ólafíu sitja þau Guðmundur Magnússon, Gunnar Sær Ragnarsson og Jónína Guðmundsdóttir sem aðalmenn í stjórninni. Ívar Atli Sigurjónsson og Kristín Hermannsdóttir eru varamenn.