Rafmagnslaust er á Suðurlandsbraut og í Faxafeni í Reykjavík þessa stundina. Þetta staðfestir Breki Logason, upplýsingafulltrúi Orkuveitu Reykjavíkur, í samtali við mbl.is.
Að sögn Breka sló rafmagninu út um sex leytið í kvöld vegna háspennubilunar.
Þá hafa umferðarljós á svæðinu verið óvirk.
Í frétt Vísis kemur fram að rafmagnsleysið hafi áhrif á útsendingar Stöðvar 2 og óvíst sé hvort kvöldfréttatími Stöðvar 2 kl. 18.30 fari í loftið á tilætluðum tíma.
„Við sendum mannskap strax á staðinn þegar þetta datt út og það er verið að vinna í því að finna út úr því hvar bilunin er,“ segir Breki. „Vonandi getum við komið þessu í lag sem allra fyrst.“